laugardagur, maí 12, 2007

Sindri fékk bikarinn


Sindri vann breikkeppnina í flokki byrjanda. Hann fékk farandbikar, verðlaunapening og skjal.
Hann keppti líka í hópkeppni. Hans hópur varð í 3.sæti. TIL HAMINGJU SINDRI!
Hér fyrir ofan má sjá Birtu og Ronald afa fagna með Sindra.
Og hér fyrir neðan er Sindri með gripina.



Posted by Picasa

Máni og Logi ærslast



Og já Logi í pilsi. Algjör skoti. ;)

Posted by Picasa

Sunnudagur


Fyrst sjónvarp. Svo smá hjólatúr. Svo kosningar.

Posted by Picasa

fjölskyldumyndir.


Máni, Sindri, Logi og Birta.


Birta, amma, Sindri, Máni, Logi og afi.

Pabbi, konan sem ekki var búin að klæða sig og mamma.
Posted by Picasa

Birta var bitin á skóladagheimilinu. Það má vel sjá farið eftir góminn á vinstri handlegg hennar.

Logi kominn með geyslabaug og afi og amma slappa af í nýmáluðu eldhúsinu.
Posted by Picasa

Júdith amma í heimsókn með mömmu og pabba



Posted by Picasa

Góðir vinir.

Ég vil bara minna okkur öll á mikilvægi þess að eiga góða vini.

Hér er falleg saga um vini sem standa saman gegnum súrt og sætt.

Svo fallegt.

Skýr skilaboð til pabba.

Ég hef verið beðin um að setja skilaboðin hennar Birtu til pabba síns hér inn. Ég veit að pabbi fattar hver vill láta birta þau...

c_documents_and_settings_bjorn_my_documents_my_pictures_2007_04_23_img_0137

Textinn segir; "Þetta er Birta pabbi. Ég ætla að leika við Einar, ef þú sérð mig ekki úti þá er ég inni en ef þú sérð mig úti þá er ég úti."

Hér er Birta út með bróður sínum Loga. Þá er hún ekki inni.

P1000888

föstudagur, maí 11, 2007

Viðrar vel til kosninga.

Í fyrramálið skelli ég og mínum í sparifötin og við fáum okkur göngutúr niðrí bæ til að kjósa.

Mér er afar annt um atkvæðið mitt. Það er mitt peð í pólitískri refskák.

Ég óska þess að allir hugsi sig vel um áður en atkvæðið er stimplað. Skoðið stefnumál og fyrri gerðir stjórnarflokkanna. Vegi og meti. Ekki hvað rausað er fyrir kosningar. Heldur hverju hafa viðkomandi áorkað.

Ég veit að það gerir kosninguna ekki auðveldari, en það gerir hana svo sannarlega mikilvægari.

Ný eða gömul ríkisstjórn kemur ekki til með að kollvarpa einu eða neinu. Himnar hrynja ekki og samfélagið á enn eftir að dafna.

Það er eingöngu spurning um hvar fókusinn á að liggja.

Það vantar jafnvægi að mínu mati. Sami fókus í of langan tíma veldur þröngsýni. Við verðum að vera duglegri að skipta um fókus. Annars skapast of mikið misrétti.

En þegar breyta á fókus er líka mikilvægt að skoða hvaða áhrif atkvæðið getur haft. Breytir það fókus ef atkvæði er skilað til flokks sem litlar líkur eru á að nái inn þingmanni!?

Ekki að mínu mati. Heldur þvert á móti.

Hugsum okkur vel um og svo aftur og kjósum svo með góðri samvisku.

XS


miðvikudagur, maí 09, 2007

Af umönnun barna.

Það er mikilvægt að annast börnin sín. Já.

Ég er barn foreldra minna. Þau annast mig vel. Súpervel. Ég er sátt.

Ég er nýflutt í gamalt yndislegt húsnæði. Eldhúsið samt búið að vera í klessu og ég á Pollýönnunni var bara sátt af því nú kæmi ekkert í veg fyrir að ég tæki eldhúsið í gegn í lok sumars.

Nú get ég gleymt því.

Foreldrar mínir hafa verið í heimsókn hjá mér síðustu daga. Búa í Falsterbo.DSC01898

Hér er mynd frá pallinum í Falsterbo. Hún er tekin síðasta sumar. Þarna eru Pabbi, Faruk, Hermann bróðir, Linda systir og Martin að njóta góða veðursins.

Síðan mamma og pabbi komu hefur verið dekrað við mig. Það liggur við að bíði eftir mér heitur matur. Það er séð um þvotta og þrif. Búið að dytta að hinu og þessu. Hengja upp gardínur, gera við ljós, festa lausar innstungur.

Í morgun kvaddi ég foreldra mína og fór til vinnu. Skildi þau alein eftir heima.

Svo kom ég heim eftir að hafa keypt fars í kvöldmatinn og pikkað upp börnin sem ég á, elska og annast. Á móti mér tóku súper foreldrar mínir. Ég er barnið þegar í sama herbergi og þau.

Þá er pabbi búinn að tengja uppá nýtt ljósið í eldhúsinu. Því var áður bara stungið í samband og ekki langt frá því var live rafmagnsnúra sem stóð útúr vegg og tilheyrði áður ljósi undir skápum. Pabbi og mamma sýna mér hvernig pabbi tengdi þetta saman og nú er ljósið komið á slökkvara. Búið að setja bekk utan um snúruna sem liggur við gluggann svo hún blasi ekki ljót við þeim sem inn ganga....

P1000923 Og ég stari og stari og dáist endalaust af því hvað þetta geri rosalega mikið fyrir eldhúsið. Og barasta ótrúlegt og barasta ha!? Þá rennur upp fyrir mér að foreldrar mínir voru búnir að mála eldhúsið. Ég ætla að segja þetta hægt....

ÞAU VORU BÚIN AÐ M Á L A!

Nú gerist ekkert í þessu eldhúsi næstu 7 árin. Það er nefnilega fínt eins og það er.

Og svona má nú aldeilis annast börn eins og mig.

P1000551Svona leit eldhúsið út. Þetta er mynd sem ég tók eftir að vera búin að rífa niður eftirskápana.

Takið sérstaklega eftir rafmagnskaplinum sem stendur útúr veggnum til vinstri á myndinni.

Ég var að sjálfsögðu búin að þrífa og setja upp eldhús sem virkaði.

En gula klessan eftir ónýta efri skápa var þarna enn og átti að minna mig á að ég þyrfti að setja kraft í að taka eldhúsið í gegn.

Er ferlega skotin í Rafha eldavélinni.

Og hér má sjá hvað gerist ef kona skilur foreldra sína eftir eftirlitslausa.

P1000918

Allt hvítt og fínt og enginn rafmagnssnúra úr veggnum.

Það er gott þegar foreldrar annast börnin sín. Sérstaklega þegar barnið er ég.
Svei mér þá ef allir ættu ekki að eiga svona foreldra. Lífið væri svo miklu einfaldara.

Nú er hann Máni að fara að flytja í nýja íbúð sem hann var að kaupa sér. Eins gott að ég taki mig á og rétti úr þessu nú bogna bólgna baki.
Svona svo ég, mamma hans, geti annast hann jafnvel.


Og munið svo að kjósa Samfylkinguna. Við verðum að fella ríkisstjórnina.