laugardagur, maí 19, 2007

Birta skvísa.


Hún er orðin svo stór að mömmu verkjar í hjartað...

Iðunn hennar Kristínar Atla er vaxin uppúr heilum haug af fötum og á því græðir hún Birta.

Við fengum heila tískusýningu.

Sólgleraugun á samt mamma.
Posted by Picasa

Skotinn hann Logi


Hann vill bara ganga um í pilsum þessa dagana.

Hann fær þau lánuðu hjá systur sinni.

Hann er sætasti skotinn sem mamma hans þekkir.
Posted by Picasa

Mannagrjónagrautur.

Eldaði hinn vinsæla manngrjónagraut í morgun. Með kanilsykri og jarðaberjum.

P1010005

Hann var góður.

Mannagrjón hef ég ekki fundið á Íslandi en fjölskyldan í Svíþjóð er dugleg að senda okkur grjónin.

Konur eru líka menn en margir karlar þingmenn.

Þetta gæti verið nýr málsháttur fyrir Góu.

Í gærkveldi bauð ég uppá pasta með eggjum, túnfisk , rauðlauk og ólívum. Það fannst okkur gott. Nema Loga. Hann vildi bara pastað með tómatsósu. Hann er krútt.

Það verður ekki sagt um Björn Inga og Óla Björn og Sigmar í Kastljósinu í gær. Ekkert krúttlegt við þá. Hvenær fáum við nóg af þessari einhæfu og karllægu sýn á málefni líðandi stundar? P1010029

fimmtudagur, maí 17, 2007

Í réttu ljósi.

Er ekki í neinu bloggstuði. Kosningar yfirstaðnar. Stjórnamyndunarsúrrealismi. Hvað getur kona sosum sagt? Ha?

Ótrúlegt hvað hægt er að æsa sig yfir Lalla Johns auglýsingunum - ég meina við erum með dæmdan þjóf á þingi. Hann fékk meira að segja góða kosningu. Réttarkerfið ver enn nauðgara og vinkona mín sem lenti inná sjúkrahúsi eftir barsmíðar á enn í vandræðum með að fá ofbeldismanninn kærðan. Það brotnuðu nefnilega engin bein. Nú er bráðum liðið ár og enn hefur manninum ekki verið birt kæra. Er ekki bara bull að segja eitthvað?

Hér eru í staðin myndir af familíunni. Það er eitthvað jákvætt og gott og hlýjar allavega mér um hjartarrætur.

P1000953



Ég á þessar dúllur allar. Máni, Sindri, Logi og Birta.

P1000927



Hér er hún Júdith amma mín bráðum níræð og mamma mín hún Anna.

P1000929

Hér er pabbi í kósíhorninu. Listaverkin eftir Birtu og Loga.

P1000958

Og hér börnin, sum fullorðin þó, með ömmu sinni og afa. Birta átti erfitt að líta af sjónvarpinu. Hún missti sig... en það kallar hún það þegar hún dettur út í einbeitingunni.

Og hér þau yngstu með langömmu sinni og ömmu. Mér finnst þetta svo fín mynd af því að Sindri er á leið útúr henni og allir hættir að pósa og mamma meira að segja að gretta sig eitthvað framan í mig.

P1000942