Aumingja Vilhjálmur. Hann er bara mannlegur og þess vegna lenti hann í því að ráðfæra sig við forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur en ekki Borgarlögmann. Og þess vegna lenti hann líka í því að lesa ekki skjöl og týna minnismiðum, verða tvísaga og þrísaga; auðvita alltaf með hag borgarinnar fyrir brjósti (sílíkon?) Þess vegna sér Vilhjálmur enga ástæðu til að láta sig hverfa úr borgarpólitíkinni. Hann er sko mannlegur með öxl. Jórunn Frímannsdóttir segir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins standa þétt á bak við Vilhjálm. Það að þeir hafi verið ósýnilegir á bak við hann í dag, og flúið bakdyra- eða kjallaramegin út og ekki viljað ræða við fréttamenn, var bara svo Vilhjálmur ætti einn sviðið. Ógeðslega fyndið. Næstum krúttlegt.
Vilhjálmur og þeir forystumenn Sjálfstæðisflokksins, sem fjölmiðlar náðu í rassinn á, telja að hann, borgarstjórinn fyrrverandi og tilvonandi, hafi axlað sína ábyrgð. Ég er ekkert rosalega hissa. Þetta er sama fólkið og taldi Árna Johnsen hafa axlað sína ábyrgð um leið og hann slapp frá Kvíabryggju. Sama fólkið og hljóp til handa og fóta, þegar Forsetinn var frá, og veittu brekkusöngleysunni uppreista æru. Aldrei heyrðist Árni harma þann mannlega brest sinn að ræna verðmætum frá almenningi eða sjá eftir því. Fannst hann jafnvel hafa átt þetta smáræði skilið fyrir að hafa haft hag annarra svona mikið fyrir sama brjósti og Vilhjálmur. Samt dálítið fúll að hafa verið staðinn að verki. Hann bara lenti í því eins og Vilhjálmur.
Þetta virðist vera flokkslínan. Eða kannski frekar flokksskilningur á hugtakinu "að axla ábyrgð"? Ég held nefnilega að hópur innan Sjálfstæðisflokksins haldi að það að axla ábyrgð sé að henda ábyrgðinni yfir öxl, eins langt frá sér og hægt er og horfa ekki eftir hvar hún lendir.
Er það ekki bara Eyþór sem hefur þurft, svona í alvöru, að axla ábyrgð á gjörðum sínum!? Missti stöðu sína innan flokksins eftir ölvunarakstur, fór í meðferð og er að endurmeta sjálfan sig. Það kalla ég virðingarvert. Okkur getur jú öllum orðið á. Það er bara þetta að axla ekki ábyrgð sem er svo óheiðarlegt. Jú, jú Sigurður Kári missti ökuskírteinið í eitt ár. En ekki þurfti hann að hafa áhyggjur af þingsætinu eða endurmeta sjálfan sig. Gat bara haldið áfram að tala fyrir áfengi í matvörubúðum og láta eins og ekkert hafi í skorist. Kommon. Sjálfstæðisflokkurinn tók Gunnari Örlygssyni, frá Frjálslyndum, fagnandi þegar hann var búinn að hefja þingmennsku sína með því að sitja af sér helminginn af 6 mánaða dóm fyrir nótulaus viðskipti, skattsvik og ölvunarakstur. Þá var hann skírður inní flokkinn.
Axlar maður ábyrgð með því að sitja af sér fangelsisdóm? Missa ökuskírteini? Neita að segja af sér? Ætli ég geti þá axlað ábyrgð á feitri skattaskuld með því að hella mér útí pólitík - eða hætt í líkamsrækt. Mhhhhuuuhhahaaa.
Allavega. Vilhjálmur telur þetta eingöngu snúast um að hann þurfi að endurvinna traust borgarbúa - aumingja Villi. Hann ætti kannski að taka út nokkra veikindadaga.
p.s. Áhugaverð skrif eftir Reyni Traustason. Tilhugsunin um þetta valdatafl innan Sjálfstæðisflokksins veldur mér ógleði. Þorgerður Katrín og Hanna Birna bera af flestum öðrum flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins og líklegast þær einu sem geta komið honum á þurrt.
Camden Town is burning down! Alveg finnst mér hún yndisleg. Alvöru rokkari with a touch of punk. Óþekk. Dansararnir eru tær snilld. Her Blake!? Romeó og Júlía 21 aldarinnar!? You Know I'm No Good Meet you downstairs in the bar and heard Your rolled up sleeves in your skull t-shirt You say what did you do with him today? And sniff me out like I was Tanqueray
Cause you're my fella, my guy Hand me your stella and fly By the time I'm out the door You're tear men down like Roger Moore
I cheated myself Like I knew I would I told ya, I was trouble You know that I'm no good
Upstairs in bed, with my ex boy He's in the place, but I can't get joy Thinking on you in the final throes, this is when my buzzer goes
Run out to meet your chips and pitter You say we married, 'cause you're not bitter There'll be none of him no more I cried for you on the kitchen floor
I cheated myself Like I knew I would I told ya, I was trouble You know that I'm no good
Sweet reunion, Jamaica and Spain We're like how we were again I'm in the tub you on the sink Lick your lips as I soak my feet
Then you know this little carpet burn My stomach drop yeah and my guts churn You shrug and it's the worst Who truly stuck the knife in first
I cheated myself like I knew I would I told ya I was trouble, you know that I'm no good I cheated myself, like I knew I would I told ya I was trouble, you know that I'm no good Rehab They tried to make me go to rehab I said no, no, no. Yes I been black, but when I come back You wont know, know, know.
I ain’t got the time And if my daddy thinks im fine He’s tried to make me go to rehab I wont go, go, go.
I’d rather be at home with ray I ain’t got 70 days Cos there’s nothing, nothing you can teach me That I can't learn from Mr. Hathaway
Didn’t get a lot in class But I know it don’t come in a shot glass
They’re tryin to make me go to rehab I said no, no, no Yes I been black, but when I come back You wont know, know, know.
I aint got the time, And if my Daddy thinks im fine, He’s tried to make me go to rehab, I wont go, go, go.
The man said, why you think you here? I said, I got no idea Im gonna, im gonna loose my baby So I always keep a bottle near
Said, I just think you’re depressed Kiss me, yeah baby And go rest
I’m tryin to make me go to rehab I said no, no, no Yes I been black, but when I come back You wont know, know, know
I don’t ever wanna drink again I just, ooo, I just need a friend Im not gonna spend 10 weeks Have everyone think im on the mend
It’s not just my pride It’s just til these tears have dried
They’re tryin to make me go to rehab I said no, no, no Yes I been black, but when I come back, You wont know, know, know
I aint got the time, And if my daddy thinks im fine He’s trying to make me go to rehab I wont go, go, go.
Átti yndislegan dag í dag. Ekki síst því ég hitti gamla vinkonu. Loksins. Við vorum bestu vinkonur Björk og ég. Gerðum allt saman. Ég keypti ekki í matinn án þess að ráðfæra mig fyrst við hana. Svo gerist það sem stundum gerist, án nokkurrar sýnilegrar ástæðu, að við fjarlægðumst og misstum síðan alveg sambandið.
Ég flutti líka erlendis sem hefur örugglega spilað inní þetta sambandsleysi. Og það var svo gaman að hittast aftur og reyna að ná utanum allt það líf sem er liðið síðan síðast. Hvernig er hægt að missa svona gott samband!?
Björk er alvöru töffari. Hefur alltaf verið. Leður og mótorhjól er minningin um hana. Alltaf hugrökk og alltaf til í allt. Þannig man ég Björk best. Og hún er enn að; fjallaferðir, fjórhjól og mótorhjól. Og silfursmíði - ég bíð spennt eftir myndum af silfurverkunum!
Og mamma - Björk biður að heilsa!
Hér er mynd af krúttunum mínum. Máni og Sindri sleppa með skrekkinn í þetta skipti. Ég myndi aldrei gera þeim það að kalla þá krútt. Mhhhuuuhhhhaaa
Það er alveg ljóst af englasvipnum sem Loga tekst að setja upp að hann er fæddur leikari...
Halló! Var barasta að búa til bestu súpu í heimi! Best að kalla hana vetrasúpu - yndisleg orka og hiti í kroppinn! :)
6 kartöflur 1 blaðlaukur 1 laukur hvítlaukur eins og þið þolið (ég notaði 3 rif) skvetta af góðri olíu 1 lítir af vatni 3 lárviðarlauf 1 kúfuð matskeið af gerlausum grænmetiskrafti gróft salt & nýmalaður pipar
Þurrsteikt beikon heitar speltbollur
Hreinsið skrælið og sneiðið grænmeti & lauk Steikið mjúkt í olíu Setjið vatnið útí ásamt lárviðarlaufum, grænmetiskrafti og klípu af grófu salti. Látið malla í 20 mín.
þurrsteikið beikonið Maukið súpuna, piprið Skammtið í skál og skreytið með beikoninu Best með volgri grófri spelt bollu