Mamma stalst til að smella þessari mynd af sviðinu áður en leikar hófust.
Birta fannst rosalega gaman og er til í að fara aftur og aftur og aftur og aftur að sjá Hafið bláa. Logi skemmti sér líka konunglega, dansaði meira að segja með og klappaði á eftir hverjum söng. Ekki skemmdi fyrir að fá nammi líka.
Allt fullt af smáfuglum sem hoppa um í snjónum í leit að bita. Birta laumaðist út og gaf þeim smá eppli. Verð að segja að mér fannst alltíeinu að ég væri að horfa aftan á hana Önnu Matthildi!