Að sjálfsögðu þurfti Birta svo að prófa outfittið - með armbandi og öllu. hún er sátt. Á bak við hana á gólfinu er þetta dásemdar damaskusteppi frá Jóhönnu. Picasa
En það eru ekki bara afmælisbörn sem fá ný föt. Hér er Sindri töffari nýkominn úr verslunarferð í Malmö. Hann heldur hér utan um ferðafélaga sína Isabellu og Amöndu. Sindri þú er æðislegur! Picasa
Birta í leikskólanum sínum. Nú er verið að undirbúa sig undir skólann og liður í því er að fá einfaldan snaga í stað þess að hafa hólf fyrir dótið sitt. Hér er Birta stolt við snagann sinn. Pabbi tók myndina í morgun. Picasa
Logi er alltaf á ferðinni. Svo mikið að skoða og troða uppí sig. Þvotturinn er í uppáhaldi hjá honum og dagblöðin að ógleymdri kryddhillunni. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því akkúrat hvað hann er að hugsa um en gáfulegur er hann - eins og mamma... Picasa
Eitt er víst að honum finnst hann eiga skilið betri stól. Picasa