sunnudagur, október 29, 2006

Smáralindin


Fórum í Smáralindina í dag þar fann Logi Bubbibyggir traktor.
Hann var að sjálfsögðu himinlifandi.


Birta var enn ánægðari þegar boðið var uppá köku og kakó.

Sindri var þó ánægðastur með safapressuna sem við keyptum.
Nú verður nýpressaður safi á hverjum degi. OMG. Posted by Picasa

Mannagrjónagrautur


Logi þykist alveg geta borðað allt sjálfur við erum ekki alltaf sammála honum.

Birta elskar mannagrjónagraut, það er hægt að fá hana í gott skap bara með því að sýna henni utan á pakkann!

Sindri er að skipuleggja eitthvað rosalegt sumarfrí fyrir fjölskylduna. Ef ykkur vantar að vita kostnað við flug og hótelgistingu á öllum helstu sólarstöðum heimsins þá veit hann það. Posted by Picasa

Sunnudagsmorgun


smælað framan í heiminn Posted by Picasa

Bíóferð


Mamma, Birta og Logi fóru í bíó á laugardaginn.
Birtu fannst teiknimyndin frábær en Loga fannst sælgætissalan meira spennandi og þurfti að skreppa fram af og til og skoða hana betur.



Eftir bíó var farið í sund. Og allir sofnuðu snemma. Posted by Picasa

laugardagur, október 28, 2006

Laugardagsmorgun


Þrátt fyrir partýstand um nóttina var Logi hress í morgun.

Birta og Logi fylgjast spennt með barnatímanum...

... meðan Sindri vill ekki láta sjá sig svona snemma. Posted by Picasa