föstudagur, mars 14, 2008

Hugsanleg lausn...

... á óréttinu sem felst í dómum ofbeldismanna og níðinga er þá hver? - Að ákæra mæður þeirra?

Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag móðir ungrar stúlku, sem var nemandi í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, til að greiða kennara stúlkunnar rúmar 9,7 milljónir króna í skaðabætur auk 1 milljónar króna í málskostnað. Stúlkan renndi hurð á höfuð kennarans og slasaði hann.

Fram kemur í dómnum, að stúlkan hefur verið greind með Aspergerheilkenni. Stúlkunni hafði í nóvember 2005 sinnast við bekkjarfélaga sína og farið inn í geymslu, sem var lokað með rennihurð. Kennarinn ætlaði að sækja stúlkuna og stakk höfðinu inn í geymsluna en þá skall rennihurðin á anditi hennar og hentist hún þá með höfuðið á vegg. Síðan hefur hún þjáðst af höfuðverk, öðrum eymslum og þrekleysi.

Kennarinn stefndi bæði stúkunni og Seltjarnarnesbæ fyrir hönd skólans vegna slyssins. Í niðurstöðu fjölskipaðs héraðsdóms segir, að stúlkan, sem var nýorðin 11 ára þegar þetta gerðist, hafi þekkt muninn á réttu og röngu og ekkert í málinu bendi til þess að fötlun hennar hafi skert dómgreind hennar eða að vitsmunaþroski hennar hafi verið minni en almennt hjá börnum á sama aldri.

Þá segir í dómnum, að ekkert liggi fyrir um það í málinu að stúlkan hafi ætlað sér að skella hurðinni á kennarann heldur sé líklegra að hvatvísi hennar hafi þar ráðið för eða reiði vegna þess að henni hafði sinnast við skólabræður sína. Á hinn bóginn hafi henni mátt vera ljóst, að sú háttsemi hennar að loka hurðinni með afli væri hættuleg og hún hlyti að gafa gert sér grein fyrir því hversu alvarlegar afleiðingar sú háttsemi gat haft í för með sér. Því beri stúlkan skaðabótaábyrgð á tjóni kennarans.

Skólinn var sýknaður af kröfu um skaðabætur þó að matsmaður hafi talið að klemmivörn á hurðinni hafi ekki komið í veg fyrir að hún skall á höfði kennarans. Dómurinn taldi hurðina uppfylla öryggiskröfur í lögum.

af mbl.is

Hvernig getur móðir borið ábyrgð á barni meðan það er í skólanum? Erum við virkilega að senda börnin okkar ábyrgðarlaus í skólann?

Ekki verður þessi dómur til að enduruppbyggja trú mína á dómskerfið. Hvað ætli taki marga fjölmiðlafulltrúa til að fá okkur til að skilja þennan dóm?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er mjög furðulegur dómur, mjög mjög furðulegur, afhverju var barnið bara ekki látið vera í geymslunni, ég meina í alvöru, hvaða rétt hafði kennarinn til að ná í barnið inní geymslu þegar barnið vildi greinilega vera þar, hann var að skerða frelsi barnsins, barnið var að láta sér renna reiðina í friði inní geymslu, ég ætti kannski að verja barnið fyrir hæstarétti,

- og afhverju er ekki sameiginleg ábyrgð ef eitthvað, þetta er eitthvað svo nöturlegt, einstæð móðir með tíu miljónir útaf slysi, af því þetta er slys en ekki ásetningur.

það mætti þá í framhaldinu sekta þá sem keyra á mann um tíu miljónir,... eða hvað, ég sé bara eitt í þessu, afhverju mátti barnið ekki vera inní geymslu, mín börn, sérstaklega elsti sonur minn kunni alltaf ágætlega við sig í geymslunni og svaf þar meiraðsegja stundum,

það er aldrei sagt: komdu úr geymslunni þegar þú ert tilbúin.

það minnir á ég þarf að taka til í geymslunni.

en þetta er sorgarmál.

Elísabet J.

Hringbrautin sagði...

Þú ert snillingur Elísabet Kristín. Snillingur. Auðvitað átti barnið að fá að vera í friði í geymslunni.

Hringbrautin sagði...

p.s. Þú ert hér með skipuð dómari við héraðsdóm réttarríkis. fyrsti fundur fljótlega.

Nafnlaus sagði...

Já takk, ég skal dusta rykið af hárkollunni, en það er hægt að halda áfram með þetta, var ekki kennarinn bara meðvirkur að sýnast fyrir foreldrum sem voru að koma á fund í landafræði og vildi ekki hafa börn í geymslum því það var ekki nógu gott fyrir lúkkið.

lúkkaði ekki nógu gott... en hárkollan á eftir að lúkka vel, verður niðrá rass, fléttur í allar áttir,

love you babe, elísabetj.